
Með Allt-pakkanum svalar þú afþreyingarþörf allrar fjölskyldunnar.
Yfir 60 sjónvarpsstöðvar sem leggja áherslu á fréttir, skemmtun, fræðslu, íþróttir og tónlist. Boðið er upp á svokallaðar plúsrásir fyrir íslensku sjónvarpsstöðvarnar ásamt vel völdum erlendum rásum. Plúsrásir eru þær stöðvar sem eru sendar út með klukkutíma seinkun þannig að þú ættir ekki að missa af neinu á þeim stöðvum.
Með áskrift að SkjáHeimi fylgir einnig aðgangur að 24 erlendum útvarpsstöðvum, í fullum stafrænum gæðum, ásamt íslensku útvarpsstöðvunum. Erlendu útvarpsrásirnar eru þema tengdar og má þar t.d. finna stöðvar tileinkaðar ákveðnum áratugum og sérstökum tónlistarstefnum. Engar auglýsingar eru á erlendu stöðvunum heldur er eingöngu spiluð tónlist allan sólarhringinn.
Allir áskrifendur SkjásHeims fá síðan aðgang að SkjáBíó en þar er hægt að leigja myndir á einfaldan og ódýran hátt ásamt því að mikið af fríu efni er í boði.
Athugið að Allt-pakkinn er ekki í boði á öllum þjónustusvæðum. Nánari upplýsingar má finna á www.siminn.is eða í síma 800-7000.