Önnur þáttaröðin í magnaðri unglingaseríu sem vakti mikla athygli sl. vetur.
Þetta er ný og endurbætt útgáfa af vinsælustu unglingaseríu allra tíma, Beverly Hills 90210.
Í þessari útgáfu er það Wilson-fjölskyldan sem er miðpunktur sögunnar. Systkinin Annie og Dixon Wilson fluttu til Beverly Hills með foreldrum sínum og komust fljótt að því að líf unglinganna í þessu ríkisbubbasamfélagi var gjörólíkt því sem þau áttu að venjast í Kansas.
Líkt og í upprunalegu útgáfu þáttanna fá áhorfendur að fylgjast með ástum og átökum unglinganna og sjá að lífið í Beverly Hills er ekki bara dans á rósum.