Dagfarsprúði morðinginn Dexter snýr aftur, blóðugri og betri en nokkru sinni fyrr.
Þetta er fjórða þáttaröðin um Dexter Morgan sem á daginn vinnur við að rannsaka morð fyrir lögregluna í Miami en á kvöldin er hann sjálfur kaldrifjaður morðingi.
Núna er Dexter kominn með fjölskyldu og það eina sem hann þráir er smátími... til að drepa.
Í þessari þáttaröð kemur annar blóðþyrstur morðingi fram á sjónarsviðið og veitir Dexter verðuga keppni.
Það er John Lithgow sem leikur þennan morðingja sem hefur skilið eftir sig blóðuga slóð um árabil.
Þetta eru frábærir þættir sem hafa verið tilnefndir til bæði Golden Globe og Emmy-verðlauna og hlaut hin virtu Peabody-verðlaun árið 2008.