Skemmtileg þáttaröð þar sem grín og dramatík fara saman.
Þetta er fjórða þáttaröðin sem SkjárEinn sýnir um einkaspæjarann Shawn Spencer og hans dygga aðstoðarmann, Gus. Shawn er sonur fyrrverandi lögreglumanns sem þjálfaði hann frá blautu barnsbeini í því að taka eftir smáatriðum sem flestum öðrum yfirsést. Hann notar þessa einstöku athyglisgáfu til að aðstoða lögregluna við að upplýsa morðmál en neyðist til að ljúga því að hann sé skyggn svo lögreglan haldi ekki að hann sé viðriðinn málið.
Þetta eru gamansamir þættir sem hafa hlotið mjög góða dóma og hafa verið meðal vinsælustu þátta SkjásEins undanfarin ár.