- Ekkert venjulegt sjónvarp

Royal Pains

Royal Pains

Ný og skemmtileg þáttaröð um ungan lækni sem virðist eiga glæsta framtíð en ein afdrifarík ákvörðun breytir öllu lífi hans.

Hank Lawson er mikils metinn í starfi, á glæsilega kærustu og flotta íbúð í New York. En allt breytist þegar hann tekur ungan sjúkling fram yfir einn af bakhjörlum spítlans. Hank er rekinn úr starfi og útskúfaður úr læknasamfélaginu. Kærastan gefst upp á honum og hann fær hvergi vinnu. Hann er að veslast upp í sjálfsvorkun þegar yngri bróðir hans dregur hann með sér í helgarferð til Hamptons þar sem fræga og ríka fólkið býr. Þar gerast þeir boðflennur í partí í lúxusvillu við ströndina og Hank vinnur hetjudáð þegar hann bjargar lífi eins gestanna. Í kjölfarið fær hann hvert símtalið af öðru frá forríkum íbúum Hamptons sem falast eftir þjónustu hans.

Þessir skemmtilegu þættir slógu í gegn í bandarísku sjónvarpi sl. sumar og önnur þáttaröð er væntanleg.



Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is