Vinsælasti grínþáttur allra tíma, Saturday Night Live, snýr aftur í íslenskt sjónvarp eftir langa fjarveru og verður að sjálfsögðu á dagskrá á laugardagskvöldum.
Þessir stórskemmtilegu þættir hafa kitlað hláturtaugar áhorfenda í meira en þrjá áratugi en fyrsti þátturinn fór í loftið í bandarísku sjónvarpi árið 1975. Margir af frægustu gamanleikurum Hollywood hafa stigið sín fyrstu spor í Saturday Night Live og þeir leikarar sem nú eru í þáttunum eiga vafalítið eftir að ná langt í bransanum.
Í þáttunum er gert óspart grín að stjórnmálamönnum og fræga fólkinu með húmor sem hittir beint í mark. Í hverjum þætti kemur kunnur gestaleikari og leikur stórt hlutverk í gríninu auk þess sem frægasta tónlistarfólk heims skemmtir áhorfendum milli atriða.
Saturday Night Live hefur hlotið fjölda verðlauna í gegnum tíðina, þar á meðal 21 Emmy-verðlaun. Árið 2002 var þátturinn í tíunda sæti á lista TV Guide yfir 50 bestu sjónvarpsþætti allra tíma og 2007 var þátturinn á lista Time Magazine yfir 100 bestu sjónvarpsþætti allra tíma.