- Ekkert venjulegt sjónvarp

Með öngulinn í rassinum

Með öngulinn í rassinum

Með öngulinn í rassinum er ný þáttaröð á SkjáEinum.

Tvíburabræðurnir Gunnar og Ásmundur Helgasynir fara á kostum í þessum fjörugu þáttum sem fjalla fyrst og fremst um veiði en eru skemmtilegir fyrir alla fjölskylduna, sama hvort veiðidellan er fyrir á heimilinu eður ei.

Ási og Gunni keppa í laxveiði og öllu sem viðkemur veiðinni. Þeir keppa um hvor veiðir stærri lax og hvor veiðir fleiri laxa. Auk þess keppa þeir í fluguhnýtingum, fluguköstum, flökun og fleiru.

Málið er að þeir geta ekki annað en keppt sín á milli. Ef Gunni fær hrós verður Ási fúll, ef Ása gengur vel fyllist Gunni af öfund og afbrýði.

Í þáttinn koma líka góðir gestir og spreyta sig í kastkeppninni og spjalla um líf sitt í veiðinni. Þannig koma Þorsteinn Joð, Hilmar Hansson, Birgitta Haukdal og fleiri í heimsókn til bræðranna.

Hversu góðir þeir eru í veiðinni kemur í ljós en eitt er víst, keppnin verður hörð og skemmtileg.

Hægt er að fylgjast með ævintýrum bræðranna á vefsíðunni ongullinn.123.is



Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is